Dregur úr vindi vestan til um miðja nótt

Vindaspá á miðnætti í nótt.
Vindaspá á miðnætti í nótt. Kort/Veðurstofa Íslands

Samkvæmt Veðurstofunni hefur veðurspá dagsins gengið vel eftir. Áberandi hvassast hefur verið á norðanverðu Snæfellsnesi en þar hefur einnig rignt umtalsvert. Draga fer úr vindi vestan til um miðja nótt en í fyrramálið á Norðurlandi.

Áfram er varað við vatnavöxtum í ám á Snæfellsnesi, á Hvítársvæðinu, í kringum Eyjafalla- og Mýrdalsjökul og við sunnanverðan Vatnajökul.

Tilkynning frá Veðurstofu Íslands:

„Veðurspá dagsins hefur gengið vel eftir. Áberandi hvassast hefur verið á norðanverðu Snæfellsnesi, en þar hefur einnig rignt umtalsvert. Sumstaðar á sunnanverðum Vestfjörðum hefur vaxið talsvert í ám og lækjum og gætu líkur á grjóthruni úr bröttum hlíðum aukist þar sem úrkoman er mest. Nú síðdegis hefur dregið örlítið úr veðurofsanum en hvessir síðan aftur í kvöld og er þá bústi við suðaustan og síðan sunnan 20-30 m/s á vestanverðu landinu og norðanlands. Áfram er búist við snörpum vindhviðum við fjöll, jafnvel yfir 40 m/s. Austanlands er búist við sunnan 15-20 m/s, en þar gæti orðið byljótt í kvöld og nótt. Talsverð rigning er áfram í kortunum og er útlit fyrir aukna úrkomu suðaustanlands þegar líður á kvöldið en svipaða úrkomu vestan til og verið hefur. Draga fer úr vindi vestan til um miðja nótt, en á Norðurlandi í fyrramálið. Áfram er varað við vatnavöxtum í ám á Snæfellsnesi, á Hvítársvæðinu (bæði vestur og suður af Langjökli), í kringum Eyjafjalla- og Mýrdalsjökul og við sunnanverðan Vatnajökul.“

Úrkomuspá kl. 20 í kvöld.
Úrkomuspá kl. 20 í kvöld. Kort/Veðurstofa Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert