Sendibíll fauk út af Grindavíkurvegi

mbl.is/Þórður

Sendibíll fauk út af Grindavíkurvegi nú í hádeginu, en bálhvasst er nú á Reykjanesinu að sögn lögreglu sem hvetur fólk að vera ekki á ferðinni um Reykjanesbraut og Grindavíkurveg að tilefnislausu.

Bíllinn valt eftir að hafa fokið út af veginum skammt frá Seltjörn hvassri hviðu. Hann er mikið skemmdur, en ökumaðurinn slapp hins vegar ómeiddur eftir veltuna.

Á Facebook-síðu lögreglustjórans á Suðurnesjum eru þeir sem þurfa að vera á ferðinni því hvattir til að fara varlega og leggja tímanlega af stað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert