Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst klukkan um klukkan hálf fjögur beiðni um að þyrla kæmi til móts við sjúkrabíl á Snæfellsnesi og flytti alvarlega veikan einstakling á sjúkrahús í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gæslunni.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, fór í loftið mjög fljótlega og var komin á vettvang á þjóðveginum við Svínhól um klukkan korter yfir fjögur.
Var sjúklingurinn færður um borð í þyrluna og fluttur á sjúkrahús í Reykjavík þar sem lent var skömmu fyrir klukkan fimm.