Samtónn ásamt fleiri samtökum í tónlistariðnaðinum efndi til fagnaðar í tilefni nýs frumvarps um endurgreiðslur vegna hljóðritunar í stúdíóklasanum á Eyjaslóð 7 kl. 18 dag. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hélt erindi um úrræðið, útfærslur þess og áhrif.
Frumvarpið sem lagt var fyrir Alþingi á fyrsta degi septembermánaðar kveður á um að tónlistarmenn fái endurgreidd 25% af öllum kostnaði vegna hljóðritunar á tónlist sinni. Gert er ráð fyrir að lögin taki gildi um næstu áramót og gildi í fimm ár.
Endurgreiðslan verður gjaldgeng þegar 80% kostnaðar falla til á Íslandi og er þá heimilt að endurgreiða 25% af kostnaðinum sem fellur til á Evrópska efnahagssvæðinu. Hámarksgreiðsla er 30 milljónir yfir þriggja ára tímabil og gert er ráð fyrir að kostnaður úrræðisins nemi 81 milljón króna á ári. Er þá miðað við 130 umsóknir á ári og að meðalkostnaður við hljóðritun sé 2,5 milljónir króna, samkvæmt mati starfshóps ráðuneytisins.
Jakob Frímann Magnússon, formaður stjórnar Félags tónskálda og textahöfunda, telur að úrræðið sporni við dapurlegri þróun hljóðritunar á Íslandi og gæti laðað erlend verkefni til landsins í líkingu við sambærileg úrræði fyrir kvikmyndagerðina.
„Það er verið að fagna ákveðnum vatnaskilum í heimi upptökuvera og hljóðritunar á Íslandi sem hafa staðið höllum fæti eftir að netið kippti fæti undan hljómplötusölu hér sem annars staðar. Þetta skapar möguleika þess að kalla hingað heim erlend verkefni eins í kvikmyndaiðnaðinum,“ sagði Jakob Frímann í samtali við mbl.is.
Hann segir að nýliðun hafi verið stefnt í hættu vegna þess að íslenskir tónlistarmenn leiti út eftir að hafa notið stuðnings á Íslandi og úrræðin séu því mikilvæg til að fá arð fjárfestingarinnar aftur heim.
„Þetta er ein af nokkrum mikilvægum aðgerðum sem núverandi stjórnvöld hafa gripið til í þágu greinarinnar sem er sá angi menningarlífsins sem flestum utan Íslands er best kunnugt um. Þetta er liður í því að styrkja innviði tónlistariðnaðarins en vandamálið hefur verið að íslenskir tónlistarmenn hafa farið úr landi eftir að hafa notið stoðkerfisins hér heima og þannig fer Ísland á mis við allar tekjur sem hljótast af fjárfestingunni.“