Einn var með fyrsta vinning er dregið var í EuroJackpot happdrættinu í kvöld en fyrsti vinningur nam 1,314.113.800 krónum að þessu sinni og var sá miði keyptur í Þýskalandi. Vinningstölurnar voru 14, 16, 28, 34, 35 og stjörnutölurnar voru 3 og 9.
Sex hlutu annan vinning og fékk hver í sinn hlut rúmar 27 milljónir króna, en þeir miðar voru seldir í Danmörku, Noregi, Finnlandi, Tékklandi, Ítalíu og Þýskalandi.
Átta hlutu þriðja vinning sem nam rúmum 7 milljónum og var einn miðanna seldur í Danmörku en hinir sjö í Þýskalandi.
Enginn var með allar tölur réttar í Jókernum að þessu sinni, né heldur fjórar réttar tölur og voru jókertölur kvöldsins 5, 6, 1, 1 og 3.