Kalla þurfti til sjúkrabíl þegar hnykkur kom á hjólabát í Jökulsárlóni í gær. Allir sem voru um borð duttu en enginn slasaðist alvarlega.
Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi slasaðist ein kona á fæti.
Þessi frétt hefur verið uppfærð. Í fyrstu kom fram að fólk hefði fallið útbyrðis. Það er ekki rétt.