Tilkynnt um eld í bifreið við Bíldshöfða um klukkan eitt í nótt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Bifreiðin var alelda er lögregla og slökkvilið komu á staðinn og er ónýt. Önnur nærliggjandi bifreið skemmdist einnig. Að sögn lögreglu eru eldsupptök ókunn en málið er í rannsókn.