Sara Mjöll Stefánsdóttir fór með sigur af hólmi í Rímnaflæði Samfés, rappkeppni félagsmiðstöðva. Sara keppti fyrir félagsmiðstöðina Laugó með laginu Raunveruleikinn. Í öðru sæti varð Haki Darrason Lorenzen úr félagsmiðstöðinni 105 með lagið Fljúgðu burtu og í þriðja sæti Helena Sif Gunnarsdóttir og Silvía Rose Gunnarsdóttir úr félagsmiðstöðinni Fókus.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samfés.