Ætlaði að forða slysi en valt

Ökumaður vankaðist og skarst á höndum þegar bifreið hans valt í Keflavík í gær. Atvikið bar að með þeim hætti að ökumaðurinn missti stjórn á bifreið sinni á Hringbraut þegar hún tók að renna í hálku í átt að ljósastaur.

Hann reyndi að afstýra óhappinu en endaði utan vegar, valt og endaði á hjólunum. Ökumaðurinn komst sjálfur úr bílnum, samkvæmt lögreglu, en var sem fyrr segir vankaður og skorinn á höndum.

Hann var fluttur með sjúkrabifreið til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert