Biður íslenska neytendur afsökunar

Félag eggjaframleiðenda leggur áherslu á að samkvæmt úttektum Matvælastofnunar er …
Félag eggjaframleiðenda leggur áherslu á að samkvæmt úttektum Matvælastofnunar er um einstakt tilvik að ræða. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Félag eggjaframleiðenda er slegið yfir þeim aðbúnaði sem umfjöllun Kastljóss í gærkvöldi leiddi í ljós að varphænur byggju við í einu eggjabúi á Íslandi. Félagið telur aðbúnaðinn og blekkingar gagnvart neytendum um að þar fari fram vistvænn búskapur til skammar. Félagið biður íslenska neytendur afsökunar á þessu og fordæmir þessa starfshætti.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

„Félag eggjaframleiðenda leggur áherslu á að samkvæmt úttektum Matvælastofnunar er um einstakt tilvik að ræða. Á undanförnum árum hafa átt sér stað miklar umbætur í íslenskum eggjabúum sem hafa miðað að því að bæta aðbúnað varphæna, meðal annars með nýjum húsum sem uppfylla ítrustu kröfur. Auk þess hefur eitt eggjabú verið vottað af Vottunarstofunni Túni sem lífræn framleiðsla þar sem gerðar eru auknar kröfur um velferð og aðbúnað,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir einnig að félagið leggi ríka áherslu á að eggjabú landsins gæti að velferð og aðbúnaði varphæna. „Félagið mun leggja sig fram, í samstarfi við opinberar eftirlitsstofnanir og neytendur, við að uppræta starfshætti í líkingu við þá sem fjallað var um í Kastljósi því þeir eru með öllu óboðlegir.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert