Fimmtán bækur hafa verið tilnefndar í þremur flokkum til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Verðlaunin verða afhent í lok janúar á komandi ári af forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, en verðlaunaupphæðin er ein milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk.
Formenn dómnefndanna þriggja, sem valið hafa tilnefningarnar, munu í millitíðinni koma saman ásamt formanni skipuðum af forseta Íslands og velja einn verðlaunahafa úr hverjum flokki.
Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1989 og er þetta því í 28. sinn sem tilnefnt er til verðlaunanna.
Eftirfarandi bækur eru tilnefndar í flokki fræðirita og bóka almenns efnis:
Árni Heimir Ingólfsson
Saga tónlistarinnar
Útgefandi: Forlagið
Bergsveinn Birgisson
Leitin að svarta víkingnum
Útgefandi: Bjartur
Guðrún Ingólfsdóttir
Á hverju liggja ekki vorar göfugu kellíngar
Útgefandi: Háskólaútgáfan
Ragnar Axelsson
Andlit norðursins
Útgefandi: Crymogea
Viðar Hreinsson
Jón lærði og náttúrur náttúrunnar
Útgefandi: Lesstofan
Dómnefndina skipuðu þau Aðalsteinn Ingólfsson, formaður nefndar, Hulda Proppé og Þórunn Sigurðardóttir.
Eftirfarandi bækur eru tilnefndar í flokki barna- og ungmennabóka:
Hildur Knútsdóttir
Vetrarhörkur
Útgefandi: JPV útgáfa
Hildur Knútsdóttir og Þórdís Gísladóttir
Doddi: bók sannleikans!
Útgefandi: Bókabeitan
Margrét Tryggvadóttir og Linda Ólafsdóttir
Íslandsbók barnanna
Útgefandi: Iðunn
Þórhallur Arnórsson og Jón Páll Halldórsson
Vargöld: fyrsta bók
Útgefandi: Iðunn
Ævar Þór Benediktsson
Vélmennaárásin
Útgefandi: Mál og menning
Dómnefndina skipuðu þau Árni Árnason, formaður nefndar, Hildigunnur Sverrisdóttir og Sigurjón Kjartansson.
Eftirfarandi bækur eru tilnefndar í flokki fagurbókmennta:
Auður Ava Ólafsdóttir
Ör
Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa
Guðrún Eva Mínervudóttir
Skegg Raspútíns
Útgefandi: Bjartur
Sigurður Pálsson
Ljóð muna rödd
Útgefandi: JPV útgáfa
Sjón
Ég er sofandi hurð (Co Dex 1962)
Útgefandi: JPV útgáfa
Steinar Bragi
Allt fer
Útgefandi: Mál og menning
Dómnefndina skipuðu þau Knútur Hafsteinsson, formaður nefndar, Helga Ferdinandsdóttir og Jórunn Sigurðardóttir.