Tveir hafa verið fluttir á slysadeild eftir árekstur að minnsta kosti tveggja bíla á Kringlumýrarbraut við afreinina ofan af Bústaðavegi.
Samkvæmt slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu virðist fólkið ekki alvarlega slasað. Hurðir voru fastar á öðrum bílnum til að byrja með. Fólkinu var hjálpað út án þess að klippa þyrfti hurðina í burtu.
Slökkviliðinu barst tilkynning um slysið klukkan 16.45. Búast má við talsverðum umferðartöfum næsta klukkutímann vegna þess.
Kringlumýrarbraut er lokuð til suðurs, frá Listabraut, vegna slyssins.