Lögmaður dótturfélags Samherja í Namibíu hefur hótað málsókn á hendur þarlendu dagblaði vegna fregna um meint fjársvik þess.
Lögmaður Esju Fishing í Namibíu hefur sent blaðinu Confidénte bréf þar sem krafist er að það dragi frétt sína til baka og biðjist afsökunar. Annars verði blaðinu stefnt fyrir dómstóla, samkvæmt frétt Rúv.
Frétt mbl.is: Saka Samherja um fjársvik
Fimmtán namibísk fyrirtæki hafa sakað dótturfélagið um að hafa svikið um einn milljarð króna út úr sameiginlegu útgerðarfyrirtæki þeirra.
Fyrirtækin segja að upphæðin hafi horfið af reikningi félagsins Arcticnam Investments sem er í sameiginlegri eigu fyrirtækjanna fimmtán og Esju Fishing.
Fram kemur í Confidénte að fyrirtækjunum hafi verið meinaður aðgangur að bankareikningum félagsins og yfirlitum þeirra.
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir að fréttaflutningurinn eigi ekki við rök að styðjast.