„Fleira hrundi en bankar haustið 2008“

Í ræðu sinni við þingsetningu Alþingis í dag lagði Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands mikla áherslu á sættir og samvinnu þingmanna. Með miklum fjölda nýrra þingmanna væri nú tækifæri til að endurheimta traust á Alþingi með bættum vinnubrögðum.

mbl.is var við þingsetningu 146. löggjafarþingsins í dag. Nokkur viðbúnaður lögreglu var á staðnum sem hafði reist girðingu fyrir framan Alþingishúsið. Ekki virtist mikil þörf á því þar sem nokkrir ferðamenn voru þeir einu sem létu sjá sig við tilefnið. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert