Sótti sjúkling við erfið skilyrði

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst skömmu eftir klukkan 18:00 beiðni um aðstoð björgunarþyrlu vegna sjúklings í Vestmannaeyjum sem koma þurfti til Reykjavíkur. Sjúkraflugvél hafði þá reynt að komast til Vestmannaeyja en þurft frá að hverfa vegna veðurs.

Fram kemur í fréttatilkynningu að TF-GNÁ hafi verið á leið á nætursjónaukaæfingu með björgunarskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar þegar beiðnin hafi borist. Þyrlan var þá stödd á flugvelli Landhelgisgæslunnar og fór fljótlega í loftið áleiðis til Vestmannaeyja.

Mjög blint var á leiðinni og um tíma var óvíst hvort mögulegt yrði að lenda á flugvellinum í Vestmannaeyjum en það tókst þó að lokum. Var sjúklingurinn fluttur þangað í sjúkrabíl og um borð í þyrluna sem flutti hann til Reykjavíkur þar sem lent var rúmlega hálfátta í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert