Þrír karlmenn, sem grunaðir eru um að hafa svipt konu frelsinu og nauðgað um nýliðna helgi, hafa allir kært vikulagt gæsluvarðhald sem þeir voru hnepptir í á þriðjudaginn. Úrskurður Hæstaréttar liggur fyrir í dag.
Meint brot átti sér stað í heimahúsi í austurborginni um helgina. Karlmennirnir eru allir á fertugsaldri og brotaþolinn er á fimmtugsaldri.
Rannsókn málsins miðar vel, að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns.
Ekki fengu upplýsingar hvort meintir gerendur hafi komið áður við sögu lögreglu.
Frétt mbl.is: Þrír grunaðir um nauðgun