Þriggja bíla árekstur varð upp úr klukkan 17:00 á Vesturlandsvegi fyrir neðan Grafarholt í Reykjavík. Slökkviliðið sendi sjúkrabíl á staðinn en fyrstu fréttir herma að ekki hafi orðið alvarleg meiðsl á fólki.
Talsverðar umferðartafir hafa orðið á leiðinni í austur vegna slyssins.