Guðni Th. valdi sér jólatré

Guðni Th. ásamt Elizu konu sinni og tveimur börnum þeirra.
Guðni Th. ásamt Elizu konu sinni og tveimur börnum þeirra. Af Facebook-síðu Flugbjörgunarsveitarinnar

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands er búinn að kaupa jólatré handa fjölskyldunni sem mun standa í stofunni á Bessastöðum þessi jólin.

Frá þessu er sagt á Facebook-síðu Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík.

„Forseti Íslands og fjölskylda heiðruðu okkur í dag, renndu við og keyptu ofurfallegt jólatré til stuðnings Flugbjörgunarsveitinni. Enda sagði Guðni þau hafa gert það á hverjum jólum í nokkur ár! Kærar þakkir fyrir stuðninginn!“ segir í færslu sveitarinnar um kaup Guðna og fjölskyldu.

Jólatréð hans Guðna er stórt og fallegt.
Jólatréð hans Guðna er stórt og fallegt.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert