Tvö voru flutt á Landspítalann eftir bílveltu á Reykjanesbraut skömmu fyrir miðnætti í gærkvöldi. Slysið er rakið til hálku en mikil ísing myndaðist á Reykjanesbraut og víðar í gærkvöldi. Ekki er vitað um hversu alvarleg meiðsl þeirra eru ökumaðurinn kastaðist út úr bílnum við veltuna.
Varðstjóri í lögreglunni á Suðurnesjum segir að akstursskilyrði hafi verið varasöm vegna ísingar en annað umferðaróhapp varð á Vatnsleysustrandarvegi í nótt. Sá ökumaður slapp ómeiddur en hvorki hann né ökutækið var hæft til aksturs. Hann vegna vímu og bíllinn var á ónýtum dekkjum.