Telur vel mögulegt að brúa bilið

Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, og Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri …
Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, og Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, í Alþingishúsinu í gær. mbl.is/Árni Sæberg

Samfylkingin segist hlakka til að taka þráðinn upp að nýju í viðræðum fimm flokka um myndun ríkisstjórnar, ef vilji reynist til þess hjá öðrum.

Í yfirlýsingu segist flokkurinn vera leiður yfir því að slitnað hafi upp úr viðræðum flokkanna. Hann hafi talið góðan möguleika á að þeir gætu myndað umbótastjórn.

„Við teljum vel mögulegt að brúa bilið á milli flokkanna og lögðum til ýmsar hugmyndir um hvernig mætti fjármagna brýn verkefni. Okkur finnst mikill árangur hafa náðst í viðræðum milli þessara fimm flokka, bæði undir stjórn Katrínar Jakobsdóttur og Birgittu Jónsdóttur,“ segir í yfirlýsingunni.

Hér má lesa yfirlýsinguna í heild sinni:

„Samfylkingin er leið yfir því að slitnað hafi upp úr viðræðum fimm flokka um myndun ríkisstjórnar. Við töldum góðan möguleika á að þessir flokkar gætu myndað umbótastjórn þar sem í senn yrði unnið að endurreisn heilbrigðis- og menntakerfis og nauðsynlegra fjárfestinga í innviðum ásamt því að koma á kerfisbreytingum í landbúnaði og sjávarútvegi. Við myndum líka vinna að umbóta- og framfaramálum, s.s. loftslagsstefnu, atvinnumálum, auknu jafnrétti og nýrri stjórnarskrá, svo fátt eitt sé nefnt. 

Við teljum vel mögulegt að brúa bilið á milli flokkanna og lögðum til ýmsar hugmyndir um hvernig mætti fjármagna brýn verkefni. Okkur finnst mikill árangur hafa náðst í viðræðum milli þessara fimm flokka, bæði undir stjórn Katrínar Jakobsdóttur og Birgittu Jónsdóttur. Við erum ánægð með samvinnuna við frábært fólk í öllum þessum flokkum og hlökkum til að taka upp þráðinn að nýju, reynist vilji til þess hjá öðrum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert