„Stjórnsýslulegt hneyksli“

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Ómar

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að það sé „stjórnsýslulegt hneyksli“ hvernig staðið hafi verið að ráðningu nýs borgarritara. Kjartan segir að borgarstjóri virðist líta svo á að það sé hlutverk borgarráðsmanna að samþykkja tillögur frá honum án þess að fá tækifæri til að kynna sér öll gögn.

Fyrr í dag greindi Reykjavíkurborg frá því, að borgarráð Reykjavíkur hefði samþykkt að ráða Stefán Eiríksson, fyrrverandi lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, í starf borgarritara.

Kjartan segir í tilkynningu, að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hefðu setið hjá við afgreiðslu málsins. Það sé vegna óviðunandi vinnubragða Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra Reykjavíkur, og fulltrúa meirihlutans í málinu.

„Í raun er um stjórnsýslulegt hneyksli að ræða því gengið er út frá því að fulltrúum í fjölskipuðu stjórnvaldi sé gefinn kostur á að kynna sér gögn málsins áður en ákvörðun er tekin en svo var alls ekki í þessu tilviki. Borgarstjóri virðist líta svo á að hlutverk borgarráðsmanna sé að samþykkja tillögur frá honum án þess að þeir eigi kost á því að kynna sér gögn viðkomandi máls,“ segir Kjartan í tilkynningu sem hann sendi fyrir hönd borgarfulltrúa minnihlutans.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. mbl.is/Ómar

Óviðunandi vinnubrögð

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar og flugvallarvina lögðu fram bókun á fundinum þar sem þeir gera alvarlega athugasemd við vinnubrögð borgarstjóra og meirihluta borgarráðs vegna ráðningar borgarritara.

„Við slíka ráðningu hlýtur að vera hægt að gera kröfu um vönduð vinnubrögð enda um að ræða eitt mikilvægasta og valdamesta embætti í borgarkerfinu. Umrætt mál var ekki á útsendri dagskrá fundarins og fengu borgarráðsmenn minnihlutans engin gögn send vegna þess fyrir fundinn en um sautján umsækjendur er að ræða. Á miðjum fundi fengu fulltrúar minnihlutans loks eitt eintak afhent af tillögu borgarstjóra í málinu með þeim skilaboðum að hún yrði afgreidd í lok fundar. Tillagan er fimm blaðsíður að lengd og virðist borgarstjóri hafa ætlast til þess að fulltrúar minnihlutans læsu hana samhliða öðrum málarekstri á fundinum. Ekki var orðið við ósk fulltrúa minnihlutans um frestun málsins til næsta fundar og að þeir gætu þannig fullnægt lögboðnum skilyrðum um að kjörnir fulltrúar kynni sér gögn máls áður en ákvörðun. Slík vinnubrögð eru algerlega óviðunandi og ganga í berhögg við reglur stjórnsýsluréttar. Slík vinnubrögð eru því miður ekki einsdæmi hjá Reykjavíkurborg undir stjórn meirihluta Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Pírata og Vinstri grænna,“ segir í bókun Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar. 

Þar er nýráðnum borgarritara aftur á móti óskað velfarnaðar í störfum sínum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert