Játaði skemmdarverk á kirkjum

Skemmdarverk á Akureyrarkirkju.
Skemmdarverk á Akureyrarkirkju. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Maður á þrítugsaldri, sem grunaður er um skemmdarverk á fjórum kirkjum í bænum í fyrrinótt, var handtekinn á Akureyri í dag. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Frétt mbl.is: Skemmdirnar brot á lögum um menningarminjar

Þar segir að við skýrslutökur hafi maðurinn játað verknaðinn en hann er talinn hafa verið einn að verki. Málið telst upplýst og er maðurinn nú laus úr haldi lögreglu.

Þakkar lögreglan á Norðurlandi eystra öllum þeim sem aðstoðuðu við rannsókn málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert