Jarðskjálfti, sem mældist 3,3 stig að stærð og átti upptök sín í suðaustanverðri Bárðarbunguöskjunni reið yfir klukkan 11:10 í morgun. Engin merki sjást um gosóróa, samkvæmt upplýsingum frá jarðvársviði Veðurstofu Íslands.
Undanfarna tvo sólarhringa hafa þrír skjálftar sem hafa verið 3 stig eða meira riðið yfir á landinu en töluverð skjálftavirkni var á Hengilssvæðinu fyrr í vikunni.