Rannsókn lögreglu á meintu kynferðislegu dýraníði á hryssum í hesthúsi á Kjóavöllum í Garðabæ stendur enn yfir. Lögreglan vinnur úr gögnum og óvíst er hvenær rannsókn á málinu lýkur, að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði sem fer með rannsókn málsins.
Frétt mbl.is: Fyrsta kæran um kynferðisbrot gegn dýri
Eigendur hrossanna sem tilkynntu meinta kynferðislega misnotkun á þeim fundu sleipiefni, olíur og plasthanska í hesthúsi sínu. Engir áverkar fundust á hrossunum en ummerki um kynferðislega misnotkun fundust á að minnsta kosti tveimur hryssum.