Sinna landamæraeftirliti við Miðjarðarhaf

TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, hélt um helgina til Grikklands en næstu vikurnar sinnir vélin og áhöfn hennar landamæraeftirliti á austanverðu Miðjarðarhafi fyrir Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu, Frontex.

Til að byrja með verður flugvélin í Miðjarðarhafsverkefnum til 20. febrúar en til skoðunar er að þau verði framlengd þar til í lok mars. Þá kemur til greina að vélin sinni aftur verkefnum á svæðinu fyrir Frontex með haustinu en þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslu Íslands.

Landhelgisgæslan hefur áður sinnt margvíslegum verkefnum fyrir Frontex en undanfarna mánuði hefur óvissa ríkt um framhaldið. Í byrjun ársins óskaði Frontex eftir flugvél frá aðildarríkjunum í verkefni með mjög stuttum fyrirvara. Í ljósi fjárhagsstöðu Landhelgisgæslunnar var ákveðið að bregðast við beiðninni og eftir stuttar samningaviðræður var TF-SIF send út.

Erfiðar rekstrarhorfur

Rekstrarhorfur Landhelgisgæslunnar fyrir árið 2017 eru erfiðar og hefur þegar verið gripið til aðgerða til að haga starfseminni í samræmi við fjárheimildir. Meðal annars hafa samningar við lausráðna starfsmenn ekki verið endurnýjaðir og dregið hefur verið úr rekstrarkostnaði á öllum sviðum. Reynt verður af fremsta megni að halda úti lágmarksþjónustu.

Enn er of snemmt að segja hvort sértekjur af erlendum verkefnum skili sér að því marki sem ný rekstraráætlun Landhelgisgæslunnar gerir ráð fyrir. Það ætti þó að skýrast á næstu vikum. Beðið verður með frekari aðhaldsaðgerðir í rekstri stofnunarinnar uns endanleg niðurstaða um erlend verkefni á árinu liggur fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert