Brotist inn í níu bíla á Seltjarnarnesi

Lögreglu bárust í morgun tilkynningar um innbrot í níu bifreiðar á Seltjarnarnesi. Farið var inn í bílana í nótt og stolið úr þeim. Nokkrar bifreiðanna voru ólæstar. Þá barst í morgun tilkynning um innbrot í nýbyggingu í Kópavogi.

Um kl. 8.15 var karlmaður stöðvaður vegna gruns um ölvun við akstur. Hann reyndist hafa verið sviptur ökuréttindum sínum. Þá var karlmaður stöðvaður við akstur um kl. 10 á svæði lögreglunnar í Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbæ, grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna.

Á honum fundust fíkniefni og lyf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert