Lögreglan handtók mann á þorrablóti í Mosfellsbæ um þrjúleytið í nótt en maðurinn er grunaður um líkamsárás á blótinu. Hann er vistaður í fangageymslu lögreglunnar vegna rannsóknar málsins.
Á fjórða tímanum í nótt var tilkynnt um innbrot í fyrirtæki við Skipholt. Þar hafði verið brotin rúða í hurð, farið inn og stolið peningum úr sjóðsvél.
Lögreglan handtók mann við Laufásveg um fjögur í nótt en hann er grunaður um eignaspjöll.