Dópaður undir stýri og vopnaður exi

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Lögreglan stöðvaði för ökumanns við Laugarnesveg skömmu fyrir þrjú í nótt en maðurinn var undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttinda. Lögreglan lagði hald á exi sem maðurinn var með hjá sér í bifreiðinni.

Ung kona var stöðvuð af lögreglu á Víkurvegi um miðnætti en hún var undir áhrifum fíkniefna undir stýri auk þess sem hún er svipt ökuréttindum en hún hefur ítrekað verið stöðvuð af lögreglu fyrir það brot. Jafnframt er hún grunuð um sölu eða vörslu fíkniefna en hún var með fíkniefni á sér. Eins fundust fíkniefni á heimili hennar þegar lögregla gerði húsleit þar í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert