Lögreglunni barst tilkynning um miðnætti um töluvert ölvaðan mann í stigagangi fjölbýlishúss í Garðabæ. Þegar lögreglan kom á vettvang var maðurinn búinn að brjótast inn í geymslu og leggjast til svefns. Maðurinn var handtekinn og færður í fangaklefa þar sem hann gistir núna. Maðurinn verður yfirheyrður þegar hann verður búinn að sofa úr sér vímuna síðar í dag.
Rúða var brotin í bifreið við Ármúla upp úr klukkan 23 í gærkvöldi en engu stolið úr bifreiðinni, samkvæmt dagbók lögreglu.
Á fjórða tímanum var síðan tilkynnt um eld í ruslagámi við Langholtsskóla. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins slökkti eldinn en einhverjar skemmdir urðu vegna eldsins.