„Fáfræði og fljótræði stýra för“

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra segir hræðilegt að hugsa til þess hvernig komið er fyrir Bandaríkjunum, þar sem fordómar ráði nú ríkjum.

Tilefnið er tilskipun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að taka ekki á móti flóttamönnum frá Sýrlandi, auk þess sem miklar hömlur hafa verið settar á  vegabréfsáritanir fólks frá múslimaríkjum.

„Íslendingar hljóta allir að styðja frelsið og lýsa vanþóknun á stefnu og aðgerðum Trumps,“ skrifar Benedikt á Facebook-síðu sinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert