Mótmæla „hálfkáki“ forsætisnefndar

Frá Alþingi.
Frá Alþingi. mbl.is/Golli

Forsætisnefnd Alþingis hefur fallið á fyrstu prófraun sinni og sýnt að Alþingi skortir jarðsamband og tengsl við almenning í landinu. Þetta er mat miðstjórnar Alþýðusambands Íslands, sem segir landsmönnum hafa ofboðið ákvörðun kjararáðs um „fordæmalausa“ hækkun launa og fasta greiðslna til alþingismanna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ en þar er m.a. bent á að kosningarnar í haust hafi ekki síst snúist um breytt siðferði.

„Nýir þingmenn höfðu tækifæri til að beita sér og sýna í verki að alvara lá að baki kosningaloforðum og taka til baka hækkun þingfaralauna umfram það sem hinn almenni launamaður hefur fengið í sitt umslag.

Miðstjórn Alþýðusambandsins mótmælir hálfkáki forsætisnefndar þingsins og krefst þess að Alþingi taki málið upp og afturkalli hækkanir kjararáðs. Miðstjórn ASÍ minnir á að forsenduákvæði kjarasamninga eru til endurskoðunar nú í febrúar og hækkanir til alþingismanna og æðstu embættismanna geta sett framhald kjarasamninga alls þorra landsmanna í uppnám,“ segir í tilkynningu ASÍ.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert