Þakplötur fuku eins og lauf

Kári blés held­ur hressi­lega í Vest­manna­eyj­um í morg­un, eins og víða um sunn­an- og vest­an­vert landið. Vind­ur­inn fór mest upp í 36 m/​s í hviðum á veður­at­hug­un­ar­stöðinni í Stór­höfða.

Þak­plöt­ur og fleira laus­legt fauk eins og lauf í vindi við Heimaklett rétt fyr­ir há­degi, þegar vind­ur­inn var hvað mest­ur. 

Í meðfylgj­andi mynd­skeiði má sjá svip­mynd­ir frá óveðrinu í Vest­manna­eyj­um fyrr í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert