Á 176 km hraða

mbl.is/Þórður

Ökumaður mældist í vikunni aka á 176 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Hann var færður á lögreglustöð í Keflavík og sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.

Þá þarf hann að greiða 150.000 króna sekt og fær þrjá refsipunkta í ökuferilsskrá að sögn löreglunnar á Suðurnesjum. Auk hans kærði lögregan fimm örkumenn fyrir of hraðan akstur.

Þá voru númer fjarlægð af þremur ökutækjum, þar á meðal vörubifreið með eftirvagni, sem hvoru tveggja höfðu verið boðuð í skoðun á síðasta ári vegna ástands en því hafði ekki verið sinnt.

Einn ökumaður var fluttur á lögreglustöð vegna gruns um ölvun við akstur og játaði hann brot sitt, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert