Samninganefndir sjómanna funda núna í húsi Alþýðusambands Íslands en fundurinn hófst klukkan 13.
Þar verður staðan í kjaradeilu sjómanna, sem hefur staðið lengi yfir, rædd.
Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, sagði við mbl.is í morgun að næstu dagar kæmu til með að skera úr um hvernig málið færi.
„Ég ætla að fá menn til að hugsa aðeins betur um málin og fá fleiri saman, þá kannski kemur eitthvað út úr því,“ sagði hann.
Frétt mbl.is: „Engin ein leið neins staðar“