Meirihluti starfsmanna hættir vegna fjárskorts

Kærunefnd útlendingamála heyrir undir innanríkisráðuneytið.
Kærunefnd útlendingamála heyrir undir innanríkisráðuneytið. mbl.is/Golli

Þrettán af nítján starfsmönnum kærunefndar útlendingamála mun láta af störfum í lok næsta mánaðar vegna skertra fjárheimilda nefndarinnar og mun starfsemi nefndarinnar dragast verulega saman við þetta að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá kærunefndinni. 

Fjölgun hælisleitenda hafi valdið mikilli aukningu á þeim málafjölda sem nefndin hefur til meðferðar, en til að bregðast við  aukningunni ákvað Alþingi árið 2016 að stækka kærunefndina og veita henni auknar fjárheimildir til að hraða málsmeðferð. „Þrátt fyrir að ekki sé fyrirsjáanlegt að kærum til nefndarinnar fækki fékk nefndin í fjárlögum ársins 2017 aðeins um helming þeirra fjárheimilda sem hún taldi þörf á til að halda afgreiðslutíma mála áfram innan markmiða stjórnvalda um 90 daga meðalmálsmeðferðartíma,“ segir í tilkynningu. 

Síðustu þrjá mánuði hefur meðalafgreiðslutími nefndarinnar á málum vegna umsókna um alþjóðlega vernd verið 76 dagar, en var um 300 dagar þegar nefndin hóf störf fyrir tveimur árum. „Við blasir að bið eftir niðurstöðu í þessum málum mun byrja að lengjast strax og starfsmönnum fækkar og verður í lok þessa árs, miðað við óbreyttar fjárheimildir, sambærileg við það sem þekktist áður en kærunefndin hóf störf.“

Kærunefndin telur þörf á 140 milljón króna viðbótar fjármagni, umfram upphæðina sem  fjárlög gera ráð fyrir og ætla megi að kostnaður vegna lengri dvalar hælisleitenda hér á landi á meðan þeir bíða niðurstöðu verði mun hærri, jafnvel þó að tekið sé tillit til þeirra sem koma frá öruggum upprunaríkjum og yfirgefa landið fljótlega eftir synjun hjá Útlendingastofnun.

„Vegna ákvæða í nýjum útlendingalögum um áhrif langs málsmeðferðartíma á niðurstöðu mála mun þessi bið í auknum mæli leiða til þess að umsækjendur um alþjóðlega vernd öðlist rétt til dvalar hér á landi,“ segir í tilkynningunni.  

„Í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að afgreiðsla umsókna um alþjóðlega vernd verði mannúðlegri og afgreiðslutími verði styttur. Þrátt fyrir að kærunefndin hafi ítrekað vakið athygli á afleiðingum skertra fjárheimilda á starfssemi nefndarinnar og málsmeðferðartíma hefur vilji til að veita nefndinni aukafjármagn hefur ekki leitt til þess veitt sé vilyrði um auknar fjárheimildir.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert