Samninganefnd SFS skoðar tilboðið

Jens Garðar Helgason, formaður SFS (lengst til hægri).
Jens Garðar Helgason, formaður SFS (lengst til hægri). mbl.is/Árni Sæberg

Samninganefnd Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi hittist upp úr klukkan 9 í morgun til að ræða tilboð sem samninganefnd Sjómannasambandsins lagði fram í gær.

„Við erum að skoða þetta núna,“ segir Jens Garðar Helgason, formaður SFS.

Hann vildi ekkert tjá sig frekar um samninginn eða hvort sjómenn væru með honum að slá af kröfum sínum eins og formaður Sjómannasambandsins greindi frá í gær.

Ertu vongóður?

„Svo lengi sem menn eru að tala saman og menn eru að skiptast á tilboðum og hugmyndum þá er alltaf von,“ segir Jens Garðar.

Frá fund samninganefndar sjómanna í gær.
Frá fund samninganefndar sjómanna í gær. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert