Fundað um aðstæður á sambýli

Þorsteinn Víglundsson.
Þorsteinn Víglundsson. mbl.is/Eggert

Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, fundaði fyrir helgi með Ástu Pálmadóttur, sveitarstjóra sveitarfélagsins Skagafjarðar, til að ræða hvernig unnið skuli að úrbótum til að tryggja góða þjónustu og fullnægjandi aðbúnað íbúa sambýlis fyrir fatlað fólk á Blönduósi.

Kemur þetta fram á heimasíðu velferðarráðuneytisins en ráðherra óskaði eftir fundinum í kjölfar frétta um alvarlegar brotalamir á þjónustu og aðbúnaði íbúanna.

Á fundinum kynnti Ásta fyrir Þorsteini hvað gert hefur verið á síðustu misserum til að vinna að úrbótum á þjónustu við íbúana. Fram kom að fylgt hafi verið leiðbeiningum sérfræðiteymis um aðgerðir til að draga úr nauðung við fatlað fólk, ráðinn hafi verið forstöðumaður með menntun í þroskaþjálfafræði og stöðugildum starfsfólks við heimilið verið fjölgað. Auk þess hefði samvinna við Heilbrigðisstofnun Norðurlands varðandi heilsu og vellíðan íbúanna einnig verið efld.

Þorsteinn Víglundsson segir ríka skyldu til þess að bregðast við hverri ábendingu sem berst um ófullnægjandi aðbúnað fatlaðs fólks og eins sé ljóst að efla þurfi eftirlit með þjónustunni. Fyrir liggur ákvörðun um að efla eftirlit af hálfu ráðuneytisins til að tryggja að viðeigandi stofnanir sinni hlutverki sínu. Enn fremur stendur til að fjölga réttindagæslumönnum sem gegna lykilhlutverki í hagsmunagæslu fyrir fatlað fólk um allt land. Auk þessa er verið að semja frumvarp til nýrra laga um þjónustu við fatlað fólk með þörf fyrir mikinn stuðning sem lagt verður fram á yfirstandandi þingi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert