Tveir skiptu með sér fyrsta vinningi þegar dregið var út í Víkingalottóinu og voru báðir miðarnir keyptir í Noregi. Hlýtur hvor um sig vinning upp á rúmlega 55,6 milljónir króna.
Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og hlýtur hann tvær milljónir í vinning, miðinn var keyptur í N1 við Þjóðbraut á Akranesi, að því er segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá.
Fjórir voru með fjórar réttar tölur í réttri röð og fá þeir 100 þúsund kall í vinning. Einn miðinn var keyptur í Hagkaup á Akureyri, einn á lotto.is og tveir miðanna eru í áskrift.