Allir fjallvegir í nágrenni Patreksfjarðar eru nú ófærir að því er fram kemur á Facebook-síðu lögreglunnar á Vestfjörðum.
Eru vegirnir merktir sem slíkir á síðu Vegagerðarinnar, en kannað verður með færð á þessum fjallvegum, Hálfdáni, Mikladal og Kleifaheiði eftir um það bil tvo tíma. Eru vegfarendur á þessu svæði eru beðnir að hafa þetta í huga.