Búið er að loka fyrir umferð um Kjalarnes, Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði. Suðurlandsvegi, frá Hvolsvelli að Vík, hefur verið lokað. Búast má við frekari lokunum á Suðurlandsvegi þegar veðrið nær hámarki.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi er ekki búið að loka Hellisheiði og Þrengslum en ekkert ferðaveður er á þeim slóðum. Að sögn blaðamanns mbl.is sem var á ferðinni á Sandskeiði fyrir skömmu hafa þó nokkrir bílar farið út af og ekkert vit í að vera á ferðinni á þessum slóðum,
09:00 – 18.00 Eyjaföll og Hellisheiði.
11:00 – 18:00 Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði.
12:00 – 17:00 Reykjanesbraut.
12:00 – 18:00 Hafnarfjall.
09:00 – 18:00 Kjalarnes
15:00 – 21:00 Holtavörðuheiði og Brattabrekka.
16:00 og fram á kvöld Mývatns- og Möðrudalsöræfi, Fjarðarheiði, Fagridalur og Oddsskarð.