Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gerði húsleit í kvöld í kjallaraíbúð í Reykjavík og fann þar fjölda málverka eftir Karólínu Lárusdóttur listmálara. Þetta kemur fram á vef Rúv.
Haft er eftir lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, að þjófurinn hafi sjálfur gefið sig fram við lögreglu. Brotist var inn í geymslu listakonunnar við Vatnsstíg í Reykjavík fyrir um tveimur mánuðum og sjö málverkum stolið.
Greint var frá því í Morgunblaðinu í gær, að fjölskylda Karólínu hefði ákveðið að bjóða 500.000 krónur í verðlaun fyrir upplýsingar sem leiddu til þess að hún endurheimti málverkin.