Snjódýptin aldrei meiri í febrúar

Langt er síðan snjóað hefur jafnmikið á höfuðborgarsvæðinu.
Langt er síðan snjóað hefur jafnmikið á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Golli

Snjódýptin á höfuðborgarsvæðinu mældist 51 sentímetri klukkan 9 í morgun, sem er febrúarmet. Fyrra metið var 48 sentimetrar frá árinu 1952.

Að sögn Helgu Ívarsdóttur, vakthafandi veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands, hefur mælst meiri snjódýpt í Reykjavík en það var í janúar árið 1937 þegar dýptin var 55 sentímetrar.

„Það er ekki algengt að fá svona mikið á skömmum tíma,“ segir Helga.

Snjórinn er enn meiri en Veðurstofan gerði ráð fyrir. Hún hafði spáð 30 sentímetra snjódýpt. Vegna mikils lofts í snjónum náði dýptin að verða meiri, að sögn Helgu.

Hún bætir við að snjódýptin á höfuðborgarsvæðinu hafi aldrei farið yfir 50 cm áður í febrúar og því sé þetta með því mesta sem mælst hefur.

Snjódýptin hefur aldrei mælst meiri í febrúar á höfuðborgarsvæðinu.
Snjódýptin hefur aldrei mælst meiri í febrúar á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Golli


Að sögn Helgu mun ekki snjóa meira á höfuðborgarsvæðinu í dag og næstu daga. Þurrt verður að mestu í dag og búast má við að snjórinn sjatni í dag og á morgun.

Út vikuna er spáð frosti og því er ljóst að snjórinn er ekki á leiðinni í burtu á næstunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert