Lýst eftir Artur Jarmoszko

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Artur Jarmoszko, 26 ára, frá Austur-Evrópu. Artur er talinn klæddur í svarta úlpu eða mittisjakka, bláar gallabuxur og hvíta strigaskó. Hann er grannvaxinn og 176 sm á hæð, með blá augu og stutt, dökkt hár.

Síðast er vitað um ferðir Artur í miðborg Reykjavíkur rétt fyrir miðnætti 1. mars sl. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hans eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert