Óásættanleg kostnaðaraukning

„Þessi kostnaðaraukning er óásættanleg og mun að öllum líkindum valda …
„Þessi kostnaðaraukning er óásættanleg og mun að öllum líkindum valda því að enn fleiri fresti nauðsynlegri læknisþjónustu vegna kostnaðar en þetta hlutfall er nú þegar mun hærra en á hinum Norðurlöndunum,“ segir í tilkynningu ASÍ. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í umræðu á Alþingi í liðinni viku um greiðsluþátttöku sjúklinga í heilbrigðiskostnaði kom fram í máli heilbrigðisráðherra að árlegt kostnaðarþak yrði á bilinu 50 til 70 þúsund ári frá og með 1. maí 2017. ASÍ kallar eftir því að staðið verði við fyrirheit um 50.000 króna þak eins og lagt var upp með. Heilbrigðisráðherra verður að gefa út afdráttarlausa yfirlýsingu um fjárhæð þaksins á almennu gjaldi verði ekki hærri en 50.000 krónur og endurskoða þakið og reiknireglur í þeim drögum að reglugerð sem nú liggja fyrir. Samkvæmt þeim á þakið að verða 69.700 fyrir almenna sjúklinga en 45.300 kr. fyrir lífeyrisþega og börn. Þetta er allt of hátt þak.

ASÍ hefur tekið saman nokkur dæmi um breytingar á kostnaðarþátttöku ef heilbrigðisráðherra undirritar drög að reglugerð óbreytta með almennu þaki upp á 69.700 krónur.

Dæmin sýna kostnað við að leita sér tilfallandi læknisþjónustu hjá sjálfstætt starfandi sérgreinalæknum ef sjúklingurinn hefur ekki náð greiðsluþátttökuþaki.

Eins og dæmin sýna (sjá gröf sem fylgja fréttinni) mun kostnaðarþátttaka aukast um 10-40% fyrir einstaka heimsóknir almennra sjúklinga og 70-125% hjá lífeyrisþegum. Börn munu fá gjaldfrjálsa þjónustu hjá sérgreinalæknum að því gefnu að þau fái fyrst tilvísun frá heimilislækni. Að öðrum kosti mun kostnaðarþátttaka þeirra hjá t.d. háls-, nef- og eyrnalæknum aukast um rúmlega 600%.

„Þessi kostnaðaraukning er óásættanleg og mun að öllum líkindum valda því að enn fleiri fresti nauðsynlegri læknisþjónustu vegna kostnaðar en þetta hlutfall er nú þegar mun hærra en á hinum Norðurlöndunum,“ segir í tilkynningu ASÍ.

ASÍ studdi áform um nýtt greiðsluþátttökukerfi og taldi 50.000 kr. þak á ári fyrir almenna sjúklinga og 33.300 fyrir lífeyrisþega og börn ásættanlegt fyrsta skerf. Ný ríkisstjórn verður að standa við þau fyrirheit. Stefna ASÍ er að heilbrigðisþjónusta verði gjaldfrjáls og yrði 50.000 kr. almennt þak fyrsta skrefið í þá átt.

Umsögn ASÍ um drög að reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu og drög að reglugerð um tilvísanir fyrir börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert