Ræða við meðleigjanda og ættingja

Artur Jarmoszko.
Artur Jarmoszko.

Lögregla ræðir nú við meðleigjanda Arturs Jarmosz­ko, sem lýst var eftir í gær. Þetta staðfestir Guðmundur Páll Jóns­son lög­reglu­full­trúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir engar vísbendingar enn hafa borist um hvað hafi orðið af Arturi, en síðast er vitað um ferðir hans rétt fyrir miðnætti 1. mars þegar hann sést í öryggismyndavélum í Lækjargötu.

„Það er ekkert að frétta. Við erum aðallega í yfirheyrslum núna,“ segir Guðmundur Páll við mbl.is. Segir hann m.a. verið að ræða við ættingja og meðleigjenda Arturs.

Hann segir enga leit enn hafa verið skipulagða að Arturi, en býst fastlega við að lögregla muni vinna að því áfram um helgina að upplýsa hvarf hans.

Ekkert bendir til þess að Artur hafi farið úr landi

Mbl.is hafði eftir Guðmundi Páli fyrr í dag að búið sé að kanna þann mögu­leika að Art­ur hafi farið úr landi en ekk­ert bendi til þess. Ekki sé þó búið að úti­loka þann mögu­leika.

Verið er að skoða tölvu hans og „allt sem teng­ist hon­um“, sagði Guðmund­ur.

Artur Jarmoszko.
Artur Jarmoszko. Ljósmynd/Aðsend.

Fjöl­skylda Art­urs til­kynnti um hvarfið til lög­reglu í miðvikudag og lýst var eftir honum í gær. Að sögn frænku hans, Elwiru Landowska, hafði fjöl­skyld­an þá leitað upp­lýs­inga hjá þeim sem þekkja Art­ur og leitað á lík­leg­um stöðum, en án ár­ang­urs.

Art­ur er 26 ára. Hann er grann­vax­inn, 186 sm á hæð og með græn augu. Hann er tal­inn vera klædd­ur í svarta úlpu eða mittisjakka, blá­ar galla­bux­ur og hvíta striga­skó.

Þeir sem geta gefið upp­lýs­ing­ar um ferðir hans eru beðnir um að hafa sam­band við lög­reglu í síma 444-1000 eða í einka­skila­boðum á Face­book, eða senda póst á gudmund­ur.pall@lrh.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert