Sást á öryggismyndavélum í Lækjargötu

Artur Jarmoszko.
Artur Jarmoszko.

Lögreglu hafa ekki borist upplýsingar um ferðir Artur Jarmoszko eftir að lýst var eftir honum í gær. Síðast er vitað um ferðir hans rétt fyrir miðnætti 1. mars sl. en þá sést hann á öryggismyndavélum í Lækjargötu.

Þá var hann einn á gangi.

Að sögn Guðmundar Páls Jónssonar lögreglufulltrúa er búið að kanna þann möguleika að Artur hafi farið úr landi en ekkert bendi til þess. Þó sé ekki búið að útiloka þann möguleika.

Verið er að skoða tölvu hans og „allt sem tengist honum“, segir Guðmundur. Spurður um næstu skref ef ekkert heyrist af Artur segir lögreglufulltrúinn að þau væru formleg leit. Hins vegar sé erfitt að ráðast í slíka leit þegar engar vísbendingar liggja fyrir.

Fjölskylda Artur tilkynnti um hvarfið til lögreglu í gær. Að sögn frænku hans, Elwiru Landowska, hafði fjölskyldan þá leitað upplýsinga hjá þeim sem þekkja Artur og leitað á líklegum stöðum, en án árangurs.

Artur er 26 ára. Hann er grannvaxinn, 186 sm á hæð og með græn augu. Hann er talinn vera klæddur í svarta úlpu eða mittisjakka, bláar gallabuxur og hvíta strigaskó.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hans eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000 eða í einkaskilaboðum á Facebook, eða senda póst á gudmundur.pall@lrh.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert