Lögreglan vill ná tali af manni

Mynd/Lögreglan

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna atviks sem átti sér stað rétt austan við skemmtistaðinn Tivoli bar í Hafnarstræti í Reykjavík aðfaranótt sunnudagsins 19. febrúar.

Í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar er hann beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík. Þá eru þeir sem kunna að þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið 0111@lrh.is eða

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert