Til skoðunar að fjölga útskotum

Fjöldi bíla lagði beggja megin vegarins á milli Laugarvatns og …
Fjöldi bíla lagði beggja megin vegarins á milli Laugarvatns og Geysis í fyrradag. Ljósmynd/Pétur Gauti

Vegagerðin vinnur að rannsóknarverkefni þar sem skoðað er hvar ferðamenn stöðva bíla sína oftast úti í kanti. Hætta getur skapast þegar bifreiðar eru skyndilega stöðvaðar úti í kanti á þjóðvegum landsins, þar sem engin aðstaða er til slíks.

Mynd­band sem sýn­ir langa röð bíla­leigu­bíla, sem lögðu út í veg­kant beggja vegna veg­ar­ins milli Laug­ar­vatns og Geys­is í fyrradag til að skoða hross í haga, hef­ur vakið mikið um­tal á Face­book-síðunni Bak­land ferðaþjón­ust­unn­ar.

Engin aðstaða er fyrir bíla til að stöðva þar en það gæti breyst. „Við erum að skoða staði með möguleg útskot í huga,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, í samtali við mbl.is.

„Það er til skoðunar hvar þessir staðir eru og við erum að reyna að kortleggja það á einhvern hátt,“ segir Pétur en hann veit ekki nákvæmlega hvenær þeirri vinnu lýkur.

Hann bendir á að það þurfi ýmislegt að smella saman ef útskotum á að fjölga. „Það þarf fjármagn og annað ef á að fjölga útskotum og það eru ýmis sjónarmið í því. Vandamálið er líka að þar er innákeyrsla inn á veg sem einnig er hættuleg.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert