Íbúi í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum vaknaði upp við það í fyrrinótt að óboðinn gestur var kominn hálfur inn um svefnherbergisgluggann hjá viðkomandi. Heimilishundurinn tók á móti gestinum með sínum hætti; náði taki á honum og beit hann í hendurnar.
Hinn óprúttni náði að losa sig og hvarf út í myrkrið. Málið er í rannsókn hjá lögreglu.