Stjórn BSRB fagnar því að heilbrigðisráðherra hafi ákveðið að heimila ekki rekstur einkarekins sjúkrahúss með yfirlýsingu um að hann ætli að hafna beiðni Klíníkurinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá BSRB.
„Bandalagið hefur ítrekað varað við einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Það er því ánægjulegt að heilbrigðisráherra ætli ekki að láta undan þrýstingi þeirra sem vilja hagnast á sjúklingum,“ segir í tilkynningunni.
Stjórnin varar einnig við því að á Íslandi verði til tvöfalt heilbrigðiskerfi.
„Efla þarf heilbrigðiskerfið verulega og vinna svo um munar á biðlistum í aðgerðir. Þá þurfa stjórnvöld að draga verulega úr kostnaðarþátttöku. Markmiðið á að vera heilbrigðiskerfi sem rekið er fyrir skattfé þar sem sjúklingar fá þá þjónustu sem þeir þurfa án þess að greiða sérstaklega fyrir hana.“